EM 2012 | Allt vitlaust á götum Belgrad í gær – fagnað fram á nótt | Myndband
Allt ætlaði um koll að keyra á götum Belgrad eftir sigur heimamanna í Serbíu á Króatíu í seinni undanúrslitaleik dagsins í gær. Þegar höfðu Danir tryggt sér inn í úrslitin með sigri á Spánverjum.
Síðar um kvöldið mættust nágrannaþjóðirnar Serbía og Króatía og sigruðu heimamenn 26-22. Mikill hiti er á milli þessarra landa og voru Serbar meira en glaðir með sigurinn í gær og fögnuðu sætinu í úrslitaleiknum langt fram á nótt á götum höfuðborgarinnar.

