EM 2012 | Jackson Richardson: Ég vona að Serbía vinni

Jackson Richardson

Mynd: EHF

Eftir tvo æðislega undanúrslitaleiki á EM í stútfullri höll í Beogradska Arena er ljóst að Danmörk, eftir sigur á Spáni og heimamenn í Serbíu, með sigri á Króatíu, munu mætast í úrslitaleiknum á morgun, sunnudag.

Tíunda Evrópumeistaramótið verður því annað hvort unnið af Dönum, sem hafa reynslu af úrslitaleikjum en þeir sigruðu EM 2008, eða Serbum, sem er að fara spila fyrsta úrslitaleik sinn á stórmóti frá upphafi.

Einn af þeim 20.000 áhorfendum á undanúrslitaleikjunum í gær var franska goðsögnin, Jackson Richardson. Franski miðjumaðurinn sem varð kjörinn besti leikmaður heims árið 1995 sagði í viðtali við heimasíðu mótsins hvað honum fannt um undanúrslitaleikina í gær og hvor þjóðin hann telur líklegri í til afreka í úrslitaleiknum.

Ég tel að Danir hafi ekki verið áberandi betri í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Spáni. Úrslitin réðust á síðustu mínútunni í þessum spennuleik, sem var betur spilaður en seinni undanúrslitaleikurinn milli Serba og Króata,” sagði Richardson um undanúrslitaleikina í gær.

Richardson var spurður að því hvort síðari undanúrslitaleikurinn í gær hefði mögulega getað endað öðruvísi hefði hann verið spilaður á hlutlausum velli sagði hann þetta: “Í hreinskilni sagt, held ég ekki. Sterk vörn Serba og góð markvarsla hefði gert Króötum erfitt fyrir í sókninni, jafnvel án stuðningsins sem Serbar fengu, þannig að ég held að Serbar hefðu samt unnið.”

Að lokum var Jackson Richardson spurður að því hvor þjóðin myndi hreppa EM-gullið “Ég er sannfærður um að Serbía muni sigra. Að mínu viti er Serbía með betra lið og stuðningur áhangenda þeirra mun einnig hjálpa þeim. Danmörk er með hæfileikaríkt lið en ég held að leikmenn Dana skorti reynslu. Ég vona að Serbía vinni.”