EM 2012 | Markið sem Mikkel Hansen skoraði í gær | Myndband

Mynd: Hilmar Þór.

Mikkel Hansen stórskyttan í danska landsliðinu gerði það sama og hann gerði á Ólympíuleikunum í Peking 2008 í gær er hann skoraði úr aukakasti er leiktíminn í fyrri hálfleik var liðinn. Mikkel Hansen skoraði þá í gegnum varnarvegg Spánar, sem var að vísu ræfilslegur.

Hér að neðan má sjá mark Mikkel Hansen í gær er Danmörk sigraði Spán og einnig markið sem hann skoraði á ÓL 2008 gegn Rússlandi, sem tryggði Dönum eins marks sigur.