EM 2012 | Talsmaður Króata: Morðum var hótað
Leiðinlegt atvik átti sér stað í gær í undanúrslitaleik Serba og Króata í gær, þegar áhangandi Serba kastaði, líklega pílu sem átti að fara í Króatann, Ivano Balic, en fór ekki betur en svo að hún hitti leikmann Serba Zarko Sesum, sem er nú á sjúkrahúsi og mögulega búinn að missa sjón á öðru auga.
Serbía sigraði leikinn 26-22 og er mætir Dönum í fyrsta úrslitaleik sínum á stórmóti frá upphafi. Lögreglan í Serbíu mun bæta við öryggið fyrir úrslitaleikinn á morgun til þess að koma í veg fyrir að slíkt atvik muni koma upp aftur.
“Einhver af pöllunum kastaði pílu sem átti að fara í Ivano Balic, en fór í Sesum. Hann er á sjúkrahúsi og við erum hræddir um að hann muni missa augað,” sagði talsmaður króatíska landsliðsins, Zlatko Skrinjar.
“Áhorfendurnir voru mjög æstir og því miður óheiðarlegir. Þeir voru að tala um að fremja morð og þess háttar. Þetta var sorglegt, en var viðbúið.”
Tengdar fréttir:
EM 2012 | Hneyksli: Žarko Šešum fékk mögulega pílu í augað

