EM 2012 | Hneyksli: Žarko Šešum fékk mögulega pílu í augað
Ljótt atvik átti sér stað í gær í seinni undanúrslitaleiknum milli Serba og Króata. Einn af 20.000 stuðningsmönnum heimamanna í Serbíu kastaði þá annaðhvort dartpílu, smámynt eða plastflösku í leikmann Serba, en fréttaflutningur af atvikinu hefur verið misjafnt og sumir fullyrða annað en hinir.
Leikmaðurinn sem um ræðir er miðjumaðurinn Žarko Šešum, sem leikur undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen, en hann hefur verið drjúgur fyrir heimamenn á mótinu. Nú ríkir hins vegar óvissa um hvort Šešum geti leikið með Serbíu í úrslitaleiknum á morgun gegn Dönum.
Óttast er að Šešum muni missa sjón á öðru auga eða sjón hans skaðist verulega. Nú spyrja sig ef til vill margir af hverju stuðningsmaður Serba ætti að vilja skaða leikmann í sínu liði. Svo er að sjálfsögðu ekki en þessi stuðningsmaður Serba ætlaði annaðhvort að hitta Króatann Ivano Balic eða þjálfara Króatíu, Slavko Goluza.
Stórstjarnan í króatíska landsliðinu, Ivano Balic segir í samtali við danska fjölmiðilinn spn.dk að Sesum hafi fengið smámynt í augað. Balic telur að myntin hafi átt að hæfa sig.
Þetta er leiðindaratvik en eftir því sem næst verður komst mun Handknattleikssamband Evrópu taka málið til skoðunar væntanlega mun berast yfirlýsing frá sambandinu þegar líður á daginn. Þá mun vonandi fást úr því skorið hvað gerðist og þá hvaða áhrif þetta hefur á heilsu Sesums.
Mikil öryggisgæsla var á leiknum í gær en rúmlega 5000 lögreglumenn, vopnaðir og í skotheldum vestum voru í kringum og inn í höllinni. Eftir að leiknum lauk og Króatarnir héldu í rútur sínar voru hundruðir vopnaðra sérsveitarmanna í skotheldum vestum sem áttu að sjá til þess að ekki yrði á þær ráðist meðan Króatar gengu frá höllinni og um borð. Eftir að Króatarnir fóru svo um borð fengu þeir lögreglufylgd út úr Belgrad.

