EM 2012 | Þegar Mikkel Hansen og Kiril Lazarov mættust | Myndband

Mynd: Hilmar Þór.

Tveir af bestu leikmönnum heims mættust innbirðis í milliriðli eitt á EM fyrir viku síðan, þar sem Danir sluppu með skrekkinn eftir að hafa lent 16-10 undir og skoruðu mark á síðustu sekúndu leiksins og tryggðu sér bæði stigin með 33-32 sigri.

Mikkel Hansen fór á kostum í liði Dana og skoraði 12 mörk í leiknum en Kiril Lazarov, leikmaður Makedóníu, sló honum við og gerði 13 mörk. Sá síðarnefndni, Lazarov hefur farið á kostum á EM og er markahæsti leikmaður mótsins og hefur slegið met í að skora mörg mörk á Evrópumeistaramóti en hann er markahæsti leikmaður mótsins frá upphafi með 61 mark. Hann spilaði sjö leiki á mótinu og skoraði því 8,7 mörk í leik. Auk þess er hann í öðru sæti yfir stoðsendingahæstu menn mótsins en hann gaf 30 stoðsendingar á mótinu.

Hér að neðan er flott myndband sem sýnir þegar þessir leikmenn mættust í milliriðlunum fyrir viku síðan:

Tengdar fréttir:
EM 2012 | Danir unnu Makedóna með marki á lokasekúndunni | Myndir