Enski bikarinn | Heiðar byrjar gegn Chelsea
Heiðar Helguson byrjar í framlínu Queens Park Rangers þegar liðið tekur á móti Chelsea í fjórðu umferð enska bikarsins á Loftus Road í hádeginu í dag. Mikið hefur gengið á í aðdraganda leiksins en þegar liðin mættust í október sakaði Anton Ferdinand, miðvörður QPR, John Terry um kynþáttaníð í sinn garð og er málið nú í rannsókn hjá lögreglunni í Lundúnum.
QPR: Kenny, Hill, Hall, Mackie, Buzsaky, Barton, Young, Smith, Helguson, Wright-Phillips, Ferdinand.
Varamenn: Cerny, Orr, Derry, Hulse, Ephraim, Macheda, Onuoha.
Chelsea: Cech, Ivanovic, Cole, Luiz, Ramires, Torres, Mata, Malouda, Meireles, Sturridge, Terry.
Varamenn: Turnbull, Essien, Romeu, Bosingwa, Lukaku, Cahill, Bertrand.

