Opna ástralska | Azarenka sigraði Sharapovu í úrslitum | Myndir

Victoria Azarenka í leiknum í morgun. Mynd: Nordic Photos.

Victoria Azarenka frá Hvíta-Rússlandi fagnaði sigri á Opna ástralska tennismótinu í morgun eftir sigur gegn Mariu Sharapovu frá Rússlandi í úrslitum. Sigur hennar var sannfærandi en hún vann í tveimur settum, 6-3 og 6-0. Með sigrinum fer Azarenka í efsta sæti heimslistans en hún var í þriðja sæti listans fyrir mótið.

Þetta var fyrsti sigur Azarenku á stórmóti. Sharapova á hins vegar þrjá stórmótstitla að baki og þótti sigurstranglegri fyrir úrslitaviðureignina.

Myndir: NordicPhotos