NBA | Wade sneri aftur í lið Heat sem að vann Knicks | Oklahoma óstöðvandi

Mynd: Nordic Photots

Alls voru 13 leikir á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dwayne Wade, sem hefur verið meiddur að ökkla undanfarnar vikur, sneri aftur í lið Miami Heat sem að vann 10 stiga sigur á New York Knicks, 99-89. Wade sýndi að hann hefði engu gleymt og skoraði heil 28 stig. Félagi hans, LeBron James, bætti við 31 stigi í viðbót. Hjá Knicks var Bill Walker stigahæstur með 21 stig, en Knicks léku án Carmelo Anthony í leiknum.

Oklahoma City Tunder vann 11 stiga sigur á Golden State Warriors, 120-109. Thunder, sem hafa verið á blússandi siglingu í vetur, eru í efsta sæti vesturdeildar með árangurinn 16 sigrar, 3 töp. Stigahæstur hjá Tunder var sem fyrr Kevin Durant en hann skoraði 37 stig og tók 14 fráköst. Stigahæstur hjá Golden State Warriors var  Dorell Wright með 23 stig og 9 fráköst.

Chicago Bulls tóku á móti Milwaukee Bucks í gær. Þar unnu þeir góðan 7 stiga sigur, 107-100. Bulls eru með besta árangur allra liða í vetur en þei hafa unnuð 17 leiki af þeim 21 sem þeir hafa spilað. Derrick Rose fór fyrir heimamönnum í gær og skoraði hann 38 stig. Hjá Bucks var Brandon Jennings atkvæðamestur með 25 stig.

Þá sigraði Boston Celtics Indiana Pacers 94-87 á heimavelli þess fyrrnefnda. Stigahæstur hjá grænklæddu Celtics var Paul Pierce en hann skoraði 28 stig. Hjá Pacers var Danny Granger stigahæstur með 21 stig. Boston eru á mikilli siglingu en þeir hafa nú unnið 4 leiki í röð eftir að hafa byrjað tímabilið afar illa. Þeir hafa nú sigrað 9 af þeim 18 leikjum sem þeir hafa spilað. Pacers hafa komið á óvart í vetur og hafa sérstaklega verið að stríða stóru liðunum. Þeir hafa sigrað 12 af þeim 18 leikjum sem þeir hafa spilað.

Úrslit gærkvöldins:

Boston Celtics 94-87 Indiana Pacers
Chicago Bulls 107-100 Milwaukee Bucks
Golden State Warriors 109-120 Oklahoma City Thunder
Miami Heat 99-89 New York Knicks
Philadelphia 76ers  89-72 Charlotte Bobcats
Detroit Pistons 101-107 Atlanta Hawks
Cleveland Cavaliers 96-99 New Jersey Nets
New Orleans Hornets 93-67 Orlando Magic
Houston Rockets 103-76  Washington Wizards
Minnesota Timberwolves 87-79 San Antonio Spurs
Dallas Mavericks 116-101 Utah Jazz
Denver Nuggets 96-81 Toronto Raptors
Portland Trailblazers 109-71 Phoenix Suns